Gert að greiða bensín sem hún stal

Erlendur ferðamaður á bílaleigubifreið varð uppvís að því í fyrradag að taka eldsneyti í Njarðvík og stinga síðan af án þess að greiða fyrir það. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um málið og hafði hún skömmu síðar upp á viðkomandi, konu á þrítugsaldri.

Konan sú gat ekki sýnt fram á að hún hefði greitt fyrir bensínið og óku lögreglumenn henni til Njarðvíkur þar sem hún gerði upp sín mál og var frjáls ferða sinna að því loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert