Þrjár bílveltur vegna hálku

Lúmsk hálka hefur valdið þremur bílveltum fyrir norðan.
Lúmsk hálka hefur valdið þremur bílveltum fyrir norðan. mbl.is/Ófeigur

Þrjár bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Sauðárkróki, tvær í gær og ein í dag á milli klukkan eitt og tvö. Engin alvarleg slys urðu á fólki en ung stúlka var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu í Norðurárdal í gær. Meiðsli hennar eru ekki alvarleg samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Mæðgur voru í bifreiðinni sem valt í dag og voru þær fluttar fyrir öryggissakir á sjúkrahús en kenndu sér ekki meins á vettvangi samkvæmt lögreglu. Meginorsök slysanna er lúmsk hálka á vegum sem lítið fer fyrir.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert