Ríkið komi að byggingu 5.000 leiguíbúða

Logi Már Einarsson.
Logi Már Einarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis að ríkisstjórninni verði falið það verkefni að koma að byggingu að minnsta kosti fimm þúsund leiguíbúða svo fljótt sem auðið er með það markmið fyrir augum að koma á laggirnar leigumarkaði sem rekinn verði án hagnaðarsjónarmiða. 

„Það er nauðsynlegt að bregðast við neyðarástandi á húsnæðismarkaði þar sem mikill fjöldi fólks fær ekki lausnir við hæfi og býr við mikið óöryggi. Koma þarf ungu fólki og leigjendum í öruggt húsaskjól og mæta kröfum stéttarfélaga um aukinn félagslegan stöðugleika. Það er best gert með því að ríkið komi að stórfelldri uppbyggingu á íbúðum til að mæta skorti og tryggi að sú mikla uppbygging á nýjum íbúðum sem er í farvatninu nýtist þeim sem lakast standa á húsnæðismarkaði,“ segir meðal annars í greinargerð.

Þar segir ennfremur að aðkoma ríkissins sé nauðsynleg til þess að leggja grunn að traustum leigumarkaði og tryggja sömuleiðis að mikil fjölgun íbúða á næstu árum verði hagkvæm fyrir samfélagið og nýtist í baráttunni gegn fátækt. „Útfæra þarf aðkomu ríkisins í nánu samstarfi við sveitarfélögin í landinu og Íbúðalánasjóð. Meta þarf hvar þörfin er fyrir nýtt húsnæði og tryggja að uppbygging eigi sér stað þar.“ Fyrsti flutningsmaður er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert