Vegi við Stóru-Laxá lokað vegna áreksturs

mbl.is/Hjörtur

Skeiða- og Hrunamannavegur er nú lokaður í nágrenni Stóru-Laxár vegna umferðaróhapps, en fólksbíll og vörubíll lentu í árekstri á veginum.

Að sögn lögreglunnar á Selfossi urðu engin alvarleg meiðsl á fólki þó að allir hafi verið fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til skoðunar. Vörubíllinn lokar hins vegar brúnni og er nú unnið að því að koma honum í burt svo hægt sé að opna veginn fyrir umferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert