Sex fengu eina milljón

Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum.
Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum. mbl.is/Golli

Sex heppnir miðaeigendur fengu 1 milljón króna í vinning í útdrætti kvöldsins hjá Happdrætti Háskólans. Þá fengu sautján miðaeigendur 500 þúsund krónur í vinning og þrír 200 þúsund krónur hver.

„Það er óhætt að segja að árið fari vel af stað því heppnum Íslendingum fjölgaði um rúmlega 3.400 í útdrætti kvöldsins,“ segir Úlfar Gauti Haraldsson, rekstrarstjóri flokkahappdrættis Happdrættis Háskóla Íslands. Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum og skiptist á 3.421 heppinn miðaeiganda.

Milljónaveltan, sem var tíu milljónir króna, gekk ekki út og bætist því við veltu næsta mánaðar sem verður þá 20 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert