Bílslys í Hvalfjarðargöngunum

Röð myndaðist við göngin eftir að slysið varð og göngunum …
Röð myndaðist við göngin eftir að slysið varð og göngunum var lokað.

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning um bílslys í Hvalfjarðargöngunum fyrir um 20 mínútum.

Lögreglan gat ekki gefið nánari upplýsingar um slysið en telur það ekki hafa verið alvarlegt.

Lögreglan á Vesturlandi er á vettvangi.

Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað vegna slyssins. 

Uppfært kl. 14.17:

Búið er að opna Hvalfjarðargöngin aftur, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 

Frá Hvalfjarðargöngunum.
Frá Hvalfjarðargöngunum. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert