Viðbrögð Íslendinga gegn Rússum njóta stuðnings í þinginu, jafnt meðal stjórnar og stjórnaraðstöðu. Íslendingar hafa ákveðið að hætta öllum viðræðum við Rússa í kjölfar árásarinnar á Sergej Skripal og það liggur nú fyrir að íslenskir ráðamenn munu ekki mæta á Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu í Rússlandi í sumar.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, og Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra fóru yfir málið í Ísland vaknar í morgun en það hefur vakið athygli að Íslendingar ganga ekki jafn langt og aðrar þjóðir sem hafa vísað sendifulltrúum Rússa úr landi.
Áslaug segir að það snúist fyrst og fremst um stærð sendiráða og Íslendingar verði að halda starfhæfu sendiráði í Rússlandi. „Við erum langminnst. Næsta sendiráð er með fjórtán starfsmenn en við bara þrjá.“
Gunnar Bragi segir að stjórn og stjórnarandstaða séu sammála um að grípa til aðgerða gagnvart Rússum. Sjálfur var hann utanríkisráðherra þegar Íslendingar mótmæltu afskiptum Rússa á Krímskaga. Það varð til þess að Rússar hættu viðskiptum við Íslendinga. „Það var erfið ákvörðun en ég er handviss um að hún hafi verið rétt,“ segir Gunnar Bragi. Hann segir að sterkar vísbendingar séu til að Rússar standi að baki þessari árás og hún sé grófari en menn hafa lengi séð. Hún kalli því á viðbrögð. Hann veltir því fyrir sér hvort nauðsynlegt hafi verið að taka þessa ákvörðun svona snemma.
Áslaug segir að það hafi verið niðurstaða ríkisstjórnarinnar að fylgja öðrum þjóðum í þessari ákvörðun. „Þetta eru bandamenn okkar og við stöndum þétt við bakið á þeim,“ segir Áslaug.
Hægt er að sjá viðtalið við Áslaugu Örnu og Gunnar Braga hér og fleiri brot úr þættinum og útsendingu á K100.is