Gjaldtöku verði tafarlaust hætt

Engin gjaldtaka hefur farið fram í dag við Hraunfossa.
Engin gjaldtaka hefur farið fram í dag við Hraunfossa. mbl.is/Eggert

Byggðarráð Borgarfjarðar hefur skorað á lögreglustjórann á Vesturlandi og Umhverfisstofnun að tryggja að innheimtu vegtolla við Hraunfossa verði tafarlaust hætt.

Lögreglan stöðvaði gjaldtökuna í gær en lögmaður H-foss hefur sent Umhverfisstofnun andmæli. Engin gjaldtaka hefur farið fram í dag. 

Í bókun Byggðarráðs á fundi þess í morgun kemur fram að Hraunfossar hafi verið friðlýst svæði frá árinu 1987 og að Umhverfisstofnun beri ábyrgð á Hraunfossum og nánasta umhverfi þeirra samkvæmt sérstakri auglýsingu nr. 410/1987.

„Umhverfisstofnun hefur einnig komið að fjármögnun á uppbyggingu göngustíga og útsýnispalla í þeim tilgangi að ferðafólk geti notið fegurðar Hraunfossa án þess að spilla nærliggjandi umhverfi. Einnig ber Umhverfisstofnun ábyrgð á landvörslu á svæðinu,“ segir í bókuninni.

Hraunfossar.
Hraunfossar. mbl.is/Eggert

Þar kemur einnig fram að Vegagerðin hafi lagt veg að svæðinu fyrir opinbert fé og byggt upp bílastæði. Einnig hafi Borgarbyggð lagt fjármagn í uppbyggingu á aðstöðu á svæðinu til að auðvelda aðkomu ferðafólks að því og tryggja vernd náttúrunnar á hinu friðlýsta svæði. Jafnframt hafi Borgarbyggð kostað hreinlætisaðstöðu við Hraunfossa um langt árabil.

„Því vekur það furðu að leigutakar jarðarinnar Hraunás skuli á nýjan leik hefja töku vegtolla fyrir eigin ábata inn á fyrrgreint svæði án þess að hafa á nokkurn hátt lagt fé til uppbyggingar á þeirri aðstöðu sem er þar til staðar. Byggðarráð Borgarbyggðar telur slíkt ófært og skorar á lögreglustjórann á Vesturlandi og Umhverfisstofnun að tryggja að innheimtu vegtolla við Hraunfossa verði tafarlaust hætt,“ segir í bókuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert