Enginn vitjað fjárins

mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Enginn hefur haft samband við lögregluna á Suðurnesjum vegna peninganna sem gleymdust í hraðbanka í umdæminu í gærkvöldi. Lögreglan leitar eigandans en sá var svo heppinn að tveir ungir og skilvísir herramenn voru næstir í röðinni í bankanum.

„Þeir stukku út á eftir þér en sáu þig aka á brott og náðu þér ekki. Þess í stað komu þeir til okkar og báðu um aðstoð við að finna þig. Þannig að nú erum við að aðstoða þessa 2 flottu menn að finna þig, eigandann að þessum peningum.
Komdu til okkar með kvittunina úr bankanum og segðu okkur hvað þú tókst mikið út og þannig endurheimtir þú aurinn þinn,“ segir í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert