Bogabrúin yfir Hvítá 90 ára

Hvítárbrú setur sterkan svip á umhverfið og er enn í …
Hvítárbrú setur sterkan svip á umhverfið og er enn í notkun. mbl.is/Sigurður Bogi

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 1. nóvember kl. 19.30 verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar sögusýning um Hvítárbrúna við Ferjukot.

Hún var vígð þennan dag árið 1928 og þykir tilhlýðilegt að minnast tímamótanna, sem verður gert með veggspjaldasýningu. Á henni verður margvíslegur fróðleikur um ýmislegt tengt brúnni og byggingu hennar á sínum tíma, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Hvítá í Borgarfirði er með straumharðari vatnsföllum á Íslandi og brú yfir hana á sínum tíma skipti sköpum í samgöngum, bæði innan héraðs í Borgarfirði og á leiðinni norður í land. Var brúin mikilvæg þjóðleið allt þar til núverandi Borgarfjarðarbrú var tekin í notkun fyrir um 40 árum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert