Vonbrigði með ummæli Bjarna

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/​Hari

Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) lýsir yfir vonbrigðum með þau orð sem formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, lét falla á nýafstöðnu kirkjuþingi þjóðkirkjunnar. Þar sagði hann að krafa um aðskilnað ríkis og kirkju, eða ríkis og trúarbragða almennt, sé komin frá ungu fólki sem hafi ekki lent í áföllum á lífsleiðinni og þekki því ekki til sáluhjálpar þjóðkirkjunnar.

SUS segir í ályktuninni, að orðræða af þessu tagi lýsi gríðarlegum vanskilningi á málstað þeirra fjölmörgu Íslendinga sem styðji aðskilnað ríkis og kirkju, en um sé að ræða baráttumál SUS til margra áratuga og samþykkta stefnu Sjálfstæðisflokksins á landsfundi. Það sé afar ómálefnalegt að afskrifa málstað þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju með þeim hætti sem Bjarni gerði.

„Málstaður þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju byggir í langflestum tilvikum á því að það sé ekki hlutverk ríkisins að skattleggja almenning til að fjármagna trúfélög, hvað þá eitt trúfélag framar öðrum. Slíkt fyrirkomulag felur í sér mikið ójafnræði milli trúfélaga og er á skjön við lífsskoðanir fjölmargra Íslendinga, en sá hópur fer stækkandi með hverjum deginum og samanstendur af þjóðfélagshópum af öllum aldri og pólitískum skoðunum, og stendur í engu sambandi við reynslu fólks af áföllum í lífinu.

SUS leggur áherslu á mikilvægi þess að Sjálfstæðisflokkurinn beiti sér fyrir auknu frelsi og dragi úr inngripum ríkisins í líf fólks. Afar óeðlilegt er að formaður Sjálfstæðisflokksins standi í vegi fyrir frelsismálum sem flokksmenn og gríðarstór hluti þjóðarinnar styður,“ segir í ályktun SUS.

Sjá ávarp fjármálaráðherra á kirkjuþingi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert