Liggur ekki fyrir hver upptök eldsins voru

mbl.is/​Hari

Rannsókn stendur enn yfir á upptökum eldsins sem kom upp í iðnaðarhúsnæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði um miðjan síðasta mánuð að sögn Skúla Jónssonar, stöðvarstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Skúli segir aðspurður að enginn sé grunaður um að hafa valdið eldsvoðanum og ekki sé talið að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. Rannsóknin sé einfaldlega enn í gangi í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert