34 umsóknir um stöðu skrifstofustjóra

Stjórnarráð Íslands þar sem forsætisráðuneytið er til húsa.
Stjórnarráð Íslands þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls bárust 34 umsóknir um nýja stöðu skrifstofustjóra jafnréttismála en jafnréttismál heyra nú í fyrsta sinn undir forsætisráðuneytið með breytingum sem tóku gildi 1. janúar.

Þó að aðeins séu tvær ótímabundnar stöður á sviði jafnréttismála sem færast yfir í forsætisráðuneytið bætist ný staða skrifstofustjóra jafnréttismála við.

Fimm starfsmenn velferðarráðuneytisins í jafnréttismálum, þar af þrír í tímabundnum stöðum, fluttust á nýja skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu við breytinguna, að því er segir í tilkynningu.

Umsóknarfrestur um stöðu skrifstofustjóra rann út 5. janúar. Tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Umsækjendur eru eftirfarandi:

Aldís Sveinsdóttir grunnskólakennari.

Anna Hermannsdóttir lögfræðingur.

Anna Lísa Rúnarsdóttir sviðsstjóri.

Benedikta Sörensen, fyrirlesari í ofbeldisforvörnum.

Benjamín Gíslason verkefnastóri.

Berglind Rún Torfadóttir verkefnastjóri.

Birna Gísladóttir viðskiptafræðingur.

Brynjar Freyr Eggertsson stjórnmálafræðingur.

Einar Finnsson móttökustjóri.

Elísabet Kristjánsdóttir stundakennari.

Filippa Engman lögfræðingur.

Guðný Gústafsdóttir kynjafræðingur.

Guðríður Hjördís Baldursdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi.

Gunnar Már Árnason bókunarstjóri.

Halldóra Friðjónsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir, lögfræðingur og þroskaþjálfi.

Herdís Sólborg Haraldsdóttir sérfræðingur.

Hugrún R. Hjaltadóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu.

Jóhanna Ósk Jónasdóttir sérfræðingur.

Karólína Helga Símonardóttir verkefnisstjóri.

Katrín Erla Sigurðardóttir sérfræðingur.

Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður.

Margrét María Sigurðardóttir forstjóri.

Rannveig Gústafsdóttir meistaranemi.

Rósa Guðrún Erlingsdóttir, sérfræðingur og verkefnastjóri jafnréttismála.

Sandra Kristín Jónasdóttir háskólanemi.

Sigfríður Gunnlaugsdóttir, fagstjóri alþjóðamála.

Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra kennslu og þjónustu.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra.

Sunna Björg Símonardóttir stuðningsfulltrúi.

Urður Ásta Eiríksdóttir háskólanemi.

Özur Lárusson, fyrrv. framkvæmdastjóri.

„Framundan er stefnumótun á sviði jafnréttismála, sem að hluta til var þegar hafin í velferðarráðuneytinu, en fyrir liggur að ljúka þeirri stefnumótun sem fyrst á nýju ári og forgangsraða verkefnum og áherslum forsætisráðherra sem ráðherra jafnréttismála og ríkisstjórnarinnar í heild og þátttöku í viðburðum hér á landi og á alþjóðavettvangi. Er það í takti við pólitíska áherslu á jafnréttismál og aukið vægi þeirra,“ segir í tilkynningunni.

„Til að styrkja enn betur við stefnumótun á sviði jafnréttismála og vinnu á því sviði hefur Halla Gunnarsdóttir verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar og mun vera ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Halla hefur undanfarið veitt stýrihópi um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi forstöðu fyrir hönd forsætisráðuneytisins. Hún mun nú koma að stefnumótun á sviði jafnréttismála almennt innan stjórnsýslunnar og vera ríkisstjórninni til ráðgjafar í málaflokknum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert