Brot 430 ökumanna mynduð

Sá sem ók hraðast mældist á 111 km/klst.
Sá sem ók hraðast mældist á 111 km/klst. mbl.is/Arnþór

Brot 430 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá síðastliðnum föstudegi til dagsins í dag.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg.

Á þremur sólarhringum fóru 20.252 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, að því er kemur fram á vef lögreglunnar.

Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst. en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem ók hraðast mældist á 111 km/klst.

Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert