Féll úr rafmagnsbifreið á ferð

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Eggert

Starfsmaður féll úr rafmagnsbifreið á ferð á flughlaði Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Vinnueftirlitinu var gert viðvart um málið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá var ökumaður sem var á ferð við flugstöðina stöðvaður við hefðbundið eftirlit. Í aftursæti bifreiðar hans var fimm manna erlend fjölskylda, foreldrar með þrjú börn á aldrinum eins til þriggja ára. Börnin voru án öryggis- og verndarbúnaðar, það yngsta í kjöltu föður síns og hin tvö spennt saman í eitt öryggisbelti.

Fjölskyldan var öll saman í sæti sem átti að rúma þrjá einstaklinga. Ökumaðurinn á yfir höfði sér sekt og málið hefur verið tilkynnt til barnaverndar.

Enn fremur stöðvaði lögregla sautján ára ökumann sem var réttindalaus. Að auki hafði viðkomandi tekið bifreiðina ófrjálsri hendi. Málið var tilkynnt forráðamönnum og barnavernd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert