Íslenskar vörur verði fyrsti kostur

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 250 manns sóttu opinn fund Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í félagsheimilinu Þingborg í Hraungerðishreppi í gærkvöldi.

Tilefni fundarins var frumvarp sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda varðandi innflutning, meðal annars á ófrystu kjöti til að bregðast við dómum Hæstaréttar Íslands og EFTA-dómstólsins, að því er kemur fram í tilkynningu. Ráðherra fór ítarlega yfir sögu málsins og viðbrögð stjórnvalda en í kjölfarið gafst fundarmönnum tækifæri til að beina spurningum til ráðherra. 

„Ég er virkilega ánægður með kröftugan og málefnalegan fund. Mér finnst vera að skapast meiri skilningur á þeirri staðreynd að stjórnvöld þurfa að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er. Jafnframt að allir aðilar, hvort sem það eru bændur, stjórnvöld eða aðrir, sameinist í því verkefni að setja upp öflugar varnir til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag,” segir Kristján Þór í tilkynningunni.

„Um leið þurfum við að sameina krafta okkar í því að draga fram óumdeilda kosti innlendrar matvælaframleiðslu umfram það sem innflutt er þannig að íslenskar vörur verði fyrsti kostur allra neytenda. Ég er sannfærður um að þetta mun takast,” segir hann.

Kristján Þór mun á næstu dögum halda fleiri fundi um allt land og er fundadagskráin eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 28. feb. kl. 12 Þjóðminjasafnið, Reykjavík
  • Fimmtudagur 28. feb. kl. 19:30 Félagsheimilið Hlíðarbær, Hörgársveit
  • Mánudagur 4. mars kl. 19:30 Hótel Hamar, Borgarnesi
  • Þriðjudagur 5. mars kl. 19:30 Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum                     

Hægt er að skila inn umsögn um frumvarpið á samráðsgátt stjórnvalda og rennur frestur út miðvikudaginn 6. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert