Sorglegt að staðið sé í vegi félagsmanna

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, við kosningabíl félagsins.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, við kosningabíl félagsins. mbl.is/Hari

Stéttarfélagið Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið gagnrýnir óeðlileg afskipti atvinnurekenda af verkfallskosningum. Sé um að ræða atvik sem hafi komið upp bæði á hótelum og í hópbifreiðafyrirtækjum.

Í tilkynningu frá Eflingu segir að félagsmenn hafi sagt frá því að yfirmenn hafi boðað til funda og látið frá sér skrifleg skilaboð þar sem því er hótað að verkfallsaðgerðir og jafnvel kosningaþátttaka ein geti haft skaðlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir starfsmenn. 

„Slíkt er að mati Eflingar brot á lögum nr. 80 frá árinu 1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur varða skaðabótum og sektum og áskilur Efling sér allan rétt til málshöfðana fyrir Félagsdómi vegna slíkra brota,“ segir í tilkynningu Eflingar.

Tilraunir atvinnurekenda sorglegar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir afskipti atvinnurekenda sorgleg.

„Það er sorglegt að atvinnurekendur skuli standa í vegi fyrir því að félagsmenn Eflingar geti tekið afstöðu í löglega boðaðri atkvæðagreiðslu. [...] Þetta er lýðræðislegur og lögvarinn réttur þeirra. Efling tekur allar tilraunir til að beita félagsmenn okkar óeðlilegum þrýstingi mjög alvarlega,“ segir Sólveig.

Þá taki Efling greinilega fram að rétturinn til verkfallsaðgerða sé lögvarinn og einn af hornsteinum íslenskrar vinnumarkaðslöggjafar.

„ Að atvinnurekendur beiti starfsmenn þrýstingi í verkfallskosningu gengur í berhögg við lög um stéttarfélög og vinnudeilur en samkvæmt 4. grein þeirra laga er skýrt kveðið á um að atvinnurekendum sé óheimilt að reyna að hafa áhrif á afskipti verkafólks af vinnudeilum eða annarri starfsemi stéttarfélaga. Auk þess er rétturinn til þátttöku í stéttarfélögum, þar með talið atkvæðagreiðslum, varinn af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert