Ræða stöðu og rétt barna sem missa foreldri

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands, verður annar fundarstjóra og Guðni …
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands, verður annar fundarstjóra og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á morgun, mánudaginn 29. apríl, fer fram málþingið „Hvað verður um mig?“ þar sem fjallað verður um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris. Ráðstefnan fer fram kl. 15-17:30 í húsi Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Ráðstefnunni verður einnig streymt beint á heimasíðu Krabbameinsfélagsins.

Á ráðstefnunni fjalla fyrirlesarar um stöðu barna við fráfall foreldris frá ýmsum hliðum, en í fyrsta sinn hafa verið teknar saman tölur hjá Hagstofunni um fjölda barna sem lenda í þessari stöðu á ári hverju á Íslandi. Tölurnar snúa að aldri barnanna og dánarorsök foreldra og gefa til kynna hversu mikilvægt er að skapa lagalega umgjörð til að hlúa að þessum börnum og fjölskyldum þeirra.

„Það er stórt og óafturkræft áfall þegar foreldri barns fellur frá og hefur mikil áhrif á líf þess. Það er sorgleg staðreynd að á hverju ári lenda börn í þessari stöðu og samfélagið allt þarf að standa með þeim og sameinast um að tryggja velferð þeirra, eftir áfallið og eins lengi og þörf krefur, á þann hátt að þeim vegni sem allra best eftir missinn,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Ráðstefnan ber yfirskriftina „Hvað verður um mig?”
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Hvað verður um mig?” Ljósmynd/Krabbameinsfélagið

Kynna niðurstöður um upplifun barna

Kynntar verða rannsóknir um upplifun barna eftir fráfall foreldris og hvernig nýta megi þær upplýsingar til að skapa umgjörð fyrir fagfólk og þá sem standa að börnunum. Jafnframt verður greint frá rannsóknum á stöðu barna sem aðstandenda krabbameinssjúklinga. Fjallað verður um eigin rétt barna og þarfir fyrir stuðning og leiðsögn, skyldur og ábyrgð hins opinbera, tengsl fjölskyldu, samfélags og sjálfstæða þörf barna fyrir sorgarvinnslu og utanumhald allt til fullorðinsára. Jafnframt verður fjallað um ný lagaákvæði og verklagsreglur til að styrkja stöðu og rétt barnanna.

Aðstandendur málþingsins eru hópur áhugafólks um hag barna við fráfall foreldris, Félags- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Landspítalinn og Krabbameinsfélag Íslands.

Dagskrá má sjá hér að neðan, en fundarstjórar verða þær Laufey Erla Jónsdóttir, sérkennslustjóri og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Kl. 14:50:

Tónlist: Svavar Knútur tónlistarmaður

Kl. 15:00

Setning: Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra

Ávarp: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands

Erindi: Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands: 
Íslenskar rannsóknir á stöðu barna sem aðstandendur krabbameinssjúklinga

Erindi: Anton Örn Karlsson, deildarstjóri atvinnu-, lífskjara- og mannfjöldadeildar 
Hagstofu Íslands: Börn sem missa foreldri - fjöldi barna og dánarorsakir foreldra

Erindi: Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítala Íslands: Bætt verklag í 
þágu barna og fjölskyldna við andlát foreldris

Erindi: Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur: „Hvað verður um mig?"

Kaffihlé

Erindi: Vilhjálmur Árnason, alþingismaður: Stefnan tekin

Erindi: Birna Dröfn Jónasdóttir, Nýrri dögun - sorgarmiðstöð: 
„Og svo hrundi heimurinn”

Erindi: Heiðrún Jensdóttir formaður Arnarins minningarsjóðs: 
Sorgarúrvinnsla - helgardvöl fyrir börn í Vatnaskógi

Samantekt erinda: Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur

Ávarp: Salvör Nordal, umboðsmaður barna

Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

Lokaorð: Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra

Áætluð dagskrárlok eru klukkan 17.45.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert