Ný laxaskurðarvél Völku kynnt í Brussel

Ráðherra gangsetti nýju laxaskurðvélina.
Ráðherra gangsetti nýju laxaskurðvélina.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gangsetti nýja vatnsskurðarvél Völku á sjávarútvegssýningunni í Brussel í gær. Vélin er sérstaklega hönnuð til þess að fjarlægja bein og skera laxaflök og er búin tveimur röntgenmyndavélum sem sjá beinin í þrívídd og tveimur hallandi skurðarspíssum sem ná einstakri nákvæmni í skurðinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Völku. Í henni segir að hingað til hafi laxaframleiðendur þurft að bíða þar til fiskurinn hefur lokið dauðastirnun þar til hægt er að tína beinin úr. Með skurðarvélinni sé hægt að fjarlægja beinin strax eftir flökun, sem lengi líftíma vörunnar. Sveigjanleiki vélarinnar geri framleiðendum þá kleift að framleiða nýjar og ólíkar vörur.

Helgi útskýrir hönnunina á bakvið vélina fyrir ráðherra.
Helgi útskýrir hönnunina á bakvið vélina fyrir ráðherra.

„Við erum mjög stolt af því að hafa kynnt nýju laxaskurðarvélina okkar á sýningunni í Brussel,“ segir Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku, og bætir við að starfsfólk Völku sé spennt að hefja samstarf við laxaframleiðendur um að hámarka nýtingu flaka og um framleiðslu á nýjum hágæðavörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert