Guðríður nýr skólameistari MK

Guðríður Arnardóttir, nýr skólameistari MK.
Guðríður Arnardóttir, nýr skólameistari MK.

Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið skipuð skólameistari Menntaskólans í Kópavogi að því er fram kemur í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Guðríður er skipuð að fenginni umsögn skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi og verður Guðríður skipuð til fimm ára frá og með 1. ágúst 2019. Níu umsóknir bárust um stöðuna.

„Guðríður lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands 1995 og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda frá sama skóla árið 1997. Hún lauk diplómanámi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og diplómagráðu á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2015. Guðríður hefur auk þess lokið grunn- og framhaldsnámskeiðum í samningatækni frá Harvard háskóla,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

Þá kemur fram að að Guðríður hafi starfað sem kennari á grunn- og framhaldsskólastigi og einnig sem hugbúnaðarsérfræðingur, veðurfréttamaður og markaðsstjóri. 

„Guðríður hefur verið formaður og framkvæmdastjóri Félags framhaldsskólakennara frá árinu 2014 og er fulltrúi Íslands í ETUCE, Evrópusamtökum kennarafélaga. Þá var hún bæjarfulltrúi í Kópavogi árin 2006-2014 og formaður bæjarráðs Kópavogs 2010-2012. Hún var auk þess varaformaður stjórnar og fulltrúi í kjaranefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga 2010-2014 og fulltrúi Íslands í samráðsvettvangi sveitarstjórnarfólks á vegum Evrópuráðsins,“ segir í tilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert