Lilja á Íslendingadeginum í Norður-Dakóta

John Johnsson og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra við minnisvarða …
John Johnsson og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra við minnisvarða Stephan G. Stephanssson. Ljósmynd/Aðsend

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, var meðal gesta á Íslendingadeginum í bænum Mountain í Norður-Dakóta Í Bandaríkjunum. Dagurinn var nú haldin hátíðlegur í  120. skipti, en að honum standa afkomendur Vesturfara sem héldu frá Íslandi til Norður Ameríku á árunum 1875-1914.

Hefð er fyrir því að fulltrúi íslenskra stjórnvalda sæki Íslendingahátíðarnar í Mountain og Gimli í Manitoba sem báðar fara fram um helgina. Ráðherra flutti ávarp af því tilefni og tók þátt í skrúðgöngu.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að ráðherra hafi í ávarpi sínu fært Vestur Íslendingum kærar kveðjur frá íslensku þjóðinni og lagði meðal annars áherslu á mikilvægi samskiptanna. Vísaði ráðherra þar einkum til Snorraverkefnisins sem er m.a. ætlað ungmennum af íslenskum uppruna í Norður-Ameríku til að veita þeim tækifæri á að koma til Íslands og kynnast uppruna sínum. 

„Sú arfleið sem afkomendur Vestur Íslendinga halda á lofti hér í Norður-Dakóta er virkilega mikilvæg. Fólkið hér leggur mikið á sig til þess að rækta tengsl sín við Ísland og halda sögu okkar og menningu á lofti. Hér á svæðinu fyrirfinnast ennþá afkomendur Íslendinga sem tala íslensku án þess að hafa búið á Íslandi. Þrátt fyrir að rúm 100 ár séu liðin frá því að búferlaflutningar Vesturfaranna liðu undir lok er fólk enn mjög meðvitað um uppruna sinn og er stolt af honum,“ er haft eftir Lilju í fréttinni.

Ráðherra heimsótti einnig Víkurkirkju í Mountain, en kirkjan var byggð árið 1884 og er fyrsta íslenska kirkjan sem reist var í Bandaríkjunum. Þá heimsótti ráðherra minnisvarða um ljóðskáldin og Vesturfaranna Stephan G. Stephanssson og Kristján Níels Jónssonar eða Káinn. 

Talið er að milli 15.000-20.000 Íslendingar hafi flust búferlum og hafið nýtt líf í Vesturheimi, þar á meðan í Norður-Dakóta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert