Ólína fær 20 milljónir í bætur

Ólína Þorvarðardóttir var metin hæfust umsækjenda um stöðu þjóðgarðsvarðar á …
Ólína Þorvarðardóttir var metin hæfust umsækjenda um stöðu þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum af kærunefnd jafnréttismála, en ekki skipuð í starfið.

Ríkið hefur komist að samkomulagi um 20 milljóna króna bótagreiðslu til Ólínu Þorvarðardóttur, fyrrverandi þingmanns, en kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar gengið var framhjá henni við skipan þjóðagarðsvarðar árið 2018. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þingvallanefnd auglýsti starf þjóðgarðsvarðar laust til umsóknar haustið 2018. Tveir umsækjendur þóttu hæfastir til að gegna embættinu, Einar Sæmundsen, landfræðingur og landslagsarkitekt, og Ólína Þorvarðardóttir, doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðum.

Sjö þingmenn sitja í Þingvallanefnd, og greiddu stjórnarliðar, sem eru fjórir, allir atkvæði með Einari, en stjórnarandstöðuþingmennirnir þrír kusu Ólínu. Var Einar því skipaður þjóðgarðsvörður í október 2018.

Því undi Ólína ekki og kærði skipunina til kærunefndar jafnréttismála. Gagn­rýndi hún ráðning­una op­in­ber­lega og sagði að fram hjá sér hafi verið gengið vegna ald­urs og kyns þrátt fyr­ir að hún hefði meiri mennt­un og meiri og víðtæk­ari stjórn­un­ar­reynslu en sá sem ráðinn var.

Þá vakti hún at­hygli á því að einn nefnd­ar­manna, Páll Magnús­son þingmaður Sjálf­stæðis­flokks, hefði aldrei hlýtt á fram­sög­ur um­sækj­enda held­ur mætt að þeim lokn­um og verið bú­inn að gera upp hug sinn.

Komst kærunefnd jafnréttismála að þeirri niðurstöðu í apríl í fyrra að Þingvallanefnd hefði brotið jafnréttislög með ráðningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert