81 smit staðfest á Íslandi

Snemma í kvöld kom fram að alls hefðu um 710 …
Snemma í kvöld kom fram að alls hefðu um 710 sýni verið tek­in í heild. mbl.is/Eggert

Fimm ný tilfelli af COVID-19-sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala nú í kvöld. Heildarfjöldi tilfella er því 81.

Frá þessu greinir almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Í upphafi dags var vitað til 65 staðfestra smita og hefur þeim því fjölgað um sextán í dag.

Snemma í kvöld kom fram að alls hefðu um 710 sýni verið tek­in í heild, þar af 93 í dag.

Í sótt­kví væru 598 manns og 70 til viðbót­ar í ein­angr­un.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert