Ísland tekur þátt í ferðabanni ESB

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti forsvarsmönnum Evrópusambandsins um ákvörðunina fyrir …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti forsvarsmönnum Evrópusambandsins um ákvörðunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. mbl.is/​Hari

Ríkisstjórn Íslands hefur tilkynnt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að Ísland muni taka þátt í ferðabanni Evrópusambandsins til að draga úr útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Ákvörðunin var tekin á ríkisstjórnarfundi nú í morgun. Þetta staðfestir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við mbl.is.

Evr­ópu­sam­bandið tók ákvörðun um að loka ytri landa­mær­um sín­um fyr­ir ferðamönn­um utan sam­bands­ins og fyr­ir ónauðsyn­leg­um ferðalög­um á þriðjudaginn síðastliðinn, 17. mars, og gildir það í 30 daga.

Alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf mikilvægt

„Þrátt fyrir að ferðabann hafi ekki verið ofarlega hjá okkar sérfræðingum sem árangursrík aðferð gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins þá hefur verið biðlað til okkar að taka þátt í lokun landamæra ESB- og Schengen-ríkjanna og við eigum óhægt um vik að skorast undan því,“ segir Áslaug Arna í samtali við mbl.is og bætir við samstarf Evrópuríkja sé mikilvægt.

„Alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf ríkja er mikilvægt í baráttunni við veiruna og við þurfum á samstarfi ESB- og EES-ríkjanna að halda. Á grundvelli þess og mati á okkar hagsmunum þá munum við taka þátt í aðgerðum Schengen-ríkjanna og loka hér ytri landamærum.“

Hún tekur þó fram að þótt að Ísland muni taka þátt í þessum aðgerðum þá sé ljóst að komu ferðamanna til Íslands frá löndum utan Schengen-svæðisins sé að langmestu sjálfhætt. Bretar eru enn þá skilgreindir sem ríkisborgarar ESB og því verður áfram heimilt að fljúga til og frá Bretlandi.

Sérstakt tillit verði tekið til Íslands

Bannið mun ekki hafa bein áhrif á vöruflutninga heldur á þetta einungis við um ferðamenn utan Schengen sem verður þá ekki lengur heimilt að koma til landsins. Þá eru ákveðnar starfsstéttir undanþegnar banninu, þ.á m. starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og þeir sem sinna farmflutningum.

„En ég, forsætisráðherra og utanríkisráðherra höfum í öllum okkar samtölum við ESB ítrekað bent á okkar sérstöðu innan svæðisins. Við erum eyja langt frá öðrum löndum og við eigum meira undir flugsamgöngum og við höfum því beðið um að sérstakt tillit verði tekið til okkar þegar við sjáum fyrir að við viljum fara aflétta þessari lokun,“ tekur Áslaug Arna fram.

Íslendingar munu áfram geta ferðast til þeirra Schengen-ríkja sem ekki hafa lokað landamærum sínum gagnvart öðrum Schengen-ríkjum en það eru mörg lönd sem hafa nú þegar lokað innri landamærum sínum. Bannið snýr að framkvæmd á landamæraeftirliti en hefur ekki bein áhrif á heimildir flugfélaga til að fljúga til landa.

Tilkynning Stjórnarráðs Íslands um reglugerð um lokun fyrir ferðamenn utan Schengen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert