Ríkisstjórnin í tvöfalda skimun og smitgát

Ríkisstjórnin átti sumarfund á Suðurlandi í vikunni.
Ríkisstjórnin átti sumarfund á Suðurlandi í vikunni. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ákveðið hefur verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar fari í tvöfalda skimun og viðhafi smitgát á milli eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Ríkisstjórnin snæddi kvöldverð á hótelinu þriðjudaginn 18. ágúst og fer fyrri skimun fram síðar í dag og sú síðari á mánudag.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar teljast til ytri hrings hins mögulega smithóps og eru því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti. Tveir ráðherrar snæddu ekki á Hótel Rangá, heilbrigðis- og félagsmálaráðherra, og þurfa því ekki að undirgangast ráðstafanirnar.

Ráðstafanir sóttvarnayfirvalda í kjölfar athugunar smitrakningarteymis skipta þeim sem höfðu viðkomu á Hótel Rangá í þrjá hópa. Fyrsti hópurinn er sá sem er líklegastur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hefur í dag 14 daga sóttkví. Annar hópurinn er talinn minna líklegur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fer í eina skimun og viðhefur úrvinnslusóttkví þar til niðurstaða úr skimun berst. Þriðji hópurinn, sem ríkisstjórnin tilheyrir og er sömuleiðis minna útsettur fyrir smitum, fer í tvöfalda skimun og viðhefur smitgát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lögreglufólk, framlínufólk í orkufyrirtækjum og lykilstarfsfólk hjá fjölmiðlum og í stjórnkerfinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert