Ekki gerðar breytingar á klukkunni

Getty images

Klukkan á Íslandi verður óbreytt eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórnvöldum.

„Niðurstaða ríkisstjórnarinnar er að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund. Vegur þar þyngst að neikvæð áhrif fækkunar birtustunda á vökutíma og skerðingar birtustunda í lok dags sem dregið gætu úr útivist og hreyfingu eru ekki nægilega vel þekkt, en birtustundum hefði fækkað um 13% á ársgrundvelli með breytingunni.

Ríkisstjórnin telur að mikilvægt sé að leita leiða til að bregðast við áhrifum sem misræmi staðartíma og líkamsklukku getur haft í för með sér og ákvað að fela heilbrigðisráðherra að ráðast í fræðsluátak um mikilvægi svefns og gera kannanir á svefntíma landsmanna fyrir og eftir átakið í samstarfi við embætti landlæknis. Enn fremur var mennta- og menningarmálaráðherra falið að taka saman þau verkefni þar sem upphafi skóladags hefur verið frestað, leggja mat á þau og ráðast í frekari tilraunaverkefni þar sem fylgst verði með svefntíma barna og unglinga fyrir og eftir breytingu til að mæla árangur.

Málið hefur verið til umfjöllunar í Stjórnarráðinu í rúm tvö ár og meðal annars lagt fyrir almenning í samráðsgátt stjórnvalda en þátttaka varð umtalsverð. Þá funduðu fulltrúar forsætisráðuneytisins með fjölda umsagnaraðila og sérfræðinga,“ segir í tilkynningu.

Alls bár­ust tæp­lega 1.600 ábend­ing­ar í sam­ráðsgátt stjórn­valda um breytingar á klukkunni og leiðrétta klukk­una til sam­ræm­is við gang sól­ar. 

For­sæt­is­ráðherra ákvað í janú­ar að setja málið í opið sam­ráð í sam­ráðsgátt stjórn­valda. Í grein­ar­gerðinni voru sett­ir fram eft­ir­far­andi þrír val­kost­ir og var al­menn­ingi boðið að leggja fram sín sjón­ar­mið í sam­ráðsgátt stjórn­valda:

  • Klukk­an áfram óbreytt en fólk hvatt með fræðslu til að fara fyrr að sofa.
  • Klukk­unni seinkað um 1 klst.
  • Klukk­an áfram óbreytt en skól­ar og jafn­vel fyr­ir­tæki og stofn­an­ir hefji starf­semi seinna á morgn­ana.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert