Heildarframboð minnkaði um 89% milli ára

Heildarframboð Icelandair minnkaði um 89% milli ára í ágústmánuði.
Heildarframboð Icelandair minnkaði um 89% milli ára í ágústmánuði. mbl.is/Árni Sæberg

Heildarframboð Icelandair minnkaði um 89% milli ára í ágústmánuði. Heildarfjöldi farþega í mánuðinum var um 67 þúsund og dróst saman um 88% á milli ára. Þar af voru hátt í 53 þúsund farþegar til Íslands og um 13 þúsund frá Íslandi. 

Fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect var tæplega 13 þúsund í ágúst og dróst saman um 58% milli ára. Framboð í innanlandsflugi minnkaði um 66% milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugsstarfsemi félagsins drógust saman um 77% á milli ára í ágúst en hafa dregist saman um 42% á milli ára það sem af er ári. Flutningastarfsemi félagsins gekk samkvæmt áætlun í ágúst og drógust fraktflutningar mun minna saman en farþegaflug, eða um 23%, og hafa því dregist saman um 16% það sem af er ári.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum félagsins fyrir ágústmánuð. Í tilkynningu frá félaginu segir að stutt sumar sé nú að baki. Eftir að hafa aukist töluvert í sumar dróst farþegafjöldi hratt saman aftur í kjölfar hertra takmarkana á landamærum frá og með 19. ágúst. Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair var um 73 þúsund í júlí og hafði þá fjórfaldast á milli mánaða. Ágústmánuður fór vel af stað og útlit var fyrir áframhaldandi vöxt í fjölda farþega. 

Gekk betur en búist var við

„Félagið hefur þó þurft að draga töluvert úr flugframboði eftir 19. ágúst til að bregðast við hertum sóttvarnaaðgerðum á landamærum sem hafa haft mikil áhrif á eftirspurn eftir flugi til og frá landinu,“ segir í tilkynningu. 

„Þrátt fyrir mikinn samdrátt í farþegaflugi gekk sumarið að mörgu leyti betur en við höfðum búist við. Farþegafjöldi jókst umtalsvert frá miðjum júní þegar ferðatakmörkunum hafði verið aflétt og fram í ágúst. Jafnframt náðum við að auka tekjur með því að nýta tækifæri í leiguflugi og fraktflutningum á tímabilinu. Nú horfum við hins vegar á mikinn samdrátt í farþegaflugi á ný eftir að takmarkanir á landamærum voru hertar eftir miðjan ágúst. Félagið er þó vel í stakk búið til að takast á við slíkar breytingar og leggjum við höfuðáherslu á að viðhalda sveigjanleika til að geta brugðist hratt við þeirri stöðu sem er uppi á hverjum tíma á mörkuðum Icelandair,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert