Hekl slær í gegn í heimsfaraldri

Tinna Þórudóttir Þorvaldar situr oft í þessu horni og heklar, …
Tinna Þórudóttir Þorvaldar situr oft í þessu horni og heklar, en hún er nú að slá í gegn á heimsvísu. mbl.is/Ásdís

„Það er allt svakalega fínt að frétta úr heklinu!“ segir Tinna Þórudóttir Þorvaldar heklari með meiru þegar blaðamaður leit inn til hennar í vikunni. Í stofunni má sannarlega greina að þar búi heklari. Dokkur af garni eru þar í hillum, falleg teppi, treflar og sjöl liggja í bunkum og í horninu er góður hægindastóll og lítill lampi þar sem tilvalið er að sitja og hekla.

Tinna, sem vinnur eingöngu sem hekllistakona, segir að aldrei hafi gengið betur en nú.
„Það má finna bjartar hliðar á öllu. Nú í þessum heimsfaraldri er fullt af fólki lokað inni heima hjá sér og hvað gerir það þá? Nú, það heklar og horfir á YouTube!“ segir Tinna og hlær dátt.

Uppskriftir slá í gegn

„Fullt af fólki hefur fundið sér ný áhugamál núna og heklið og öll handavinna er svo græðandi og góð fyrir sálina. Það er svo gott að vinna með höndunum og skapa eitthvað nytsamlegt. Um leið og fólk hefur eitthvað fyrir stafni eins og að hekla, þá gleymir það áhyggjum. Það eru mjög margir sem hafa tekið upp hekl í heimsfaraldrinum,“ segir hún.
Tinna þurfti að breyta öllum sínum plönum í fyrra, eins og fleiri.

„Ég var að fara í túr til Bretlands, Írlands og Danmerkur með námskeið og á listahátíðir. Það varð auðvitað ekkert úr því. Ég var einmitt í Skotlandi þegar Covid byrjaði og kom heim mjög stressuð. Þá fór ég að hugsa, hvað get ég gert? Ég var þá þegar með YouTube-rás og var með tuttugu þúsund áskrifendur og það hafði gengið ágætlega. Ég ákvað að gefa í og bjó til fleiri myndbönd og setti þar inn. Það bar þvílíkan árangur og nú fyrir árslok 2020 náði ég markmiðinu mínu og er komin með hundrað þúsund YouTube-áskrifendur sem ég er mjög ánægð með. Þetta vatt fljótt upp á sig,“ segir Tinna og segist vera með smávegis tekjur þaðan. En í kjölfarið rauk upp salan á uppskriftum svo um munaði.

„Ég var ekki búin að gera mér grein fyrir afleiðingum af þessu áhorfi, en salan jókst gífurlega,“ segir Tinna en hún selur hekluppskriftir á síðunni ravelry.com.

„Ég er að vinna mikið með mósaík hekltækni og sló þetta í gegn í fyrra. Þetta bara rokgengur.“

Íslenska ullin með í pakka

Ertu þá orðin fræg í heklheiminum?

„Já, það er bara orðið þannig. Ég var eiginlega búin að gera allt sem ég gat gert hér heima. Það er tvennt ólíkt að vera með þrjú hundruð þúsund manna markað og svo allan heiminn. Ég er búin að gefa út fjórar bækur og halda endalaus námskeið hér heima en svo 2018 tók ég mig til og fór að selja á netinu og þá allt á ensku. Flestir sem kaupa uppskriftir eru frá Bandaríkjunum, Ástralíu, Bretlandi, Hollandi og Suður-Afríku,“ segir Tinna og segist sífellt vera að hanna nýjar uppskriftir og gefa út.

Þetta fallega marglita teppi hannaði Tinna fyrir samheklið 2020 en …
Þetta fallega marglita teppi hannaði Tinna fyrir samheklið 2020 en tíu þúsund manns tóku þátt. Ljósmynd/Maikel Medina

„Ég held ótrauð áfram og hamra járnið á meðan það er heitt. Svo er ég líka búin að vera að kynna íslenska ull í hópnum mínum og hefur því verið vel tekið. Næsta skref er að fara að selja pakka sem inniheldur uppskrift ásamt dokkum af íslenskri ull. Mér finnst gaman að geta borið út fagnaðarerindi íslensku ullarinnar.“ 

Ítarlegra viðtal við Tinnu má finna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 



Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert