Rekstri Vínbúðarinnar í Borgartúni hætt

Vínbúð í Borgartúni.
Vínbúð í Borgartúni.

Vínbúðinni í Borgartúni verður lokað frá og með mánudeginum 22. febrúar og rekstri hætt í núverandi húsnæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR.

Þar segir að auglýst hafi verið eftir húsnæði á svæðinu seinni hluta árs 2020 og að meðal annarra hafi núverandi leigusalar boðið húsnæðið áfram til leigu. Hins vegar hafi ekki náðst samningar og sú ákvörðun verið tekin að loka Vínbúðinni.

„ÁTVR harmar þessa niðurstöðu en því miður eru ekki aðrir valkostir að svo stöddu. Við biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin hefur í för með sér en bendum á að næstu Vínbúðir eru í Kringlunni, Skeifunni og Skútuvogi,“ segir í tilkynningunni.

Lítur út fyrir að fyrirtækið hafi þó gleymt verslun sinni í Austurstræti, sem er nær Borgartúninu en bæði Skeifan og Skútuvogur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert