Göngum komið fyrir undir Hafnarfjarðarvegi

Göngin eru langt komin.
Göngin eru langt komin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ er nú í fullum gangi, en þær hófust í byrjun maí sl.

Á meðan vinna stendur yfir er umferð beint um hjáleið og hefur það, þrátt fyrir mikla bílaumferð daglega, gengið átakalaust fyrir sig.

Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti í gær leið hjá voru menn við vinnu í nýjum undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi og eru göngin gerð úr forsteyptum einingum. khj@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert