Þétt setið á ölhúsum meðan á leik stóð

American Bar var þéttsetin í kvöld. Fjölmargir komust ekki inn …
American Bar var þéttsetin í kvöld. Fjölmargir komust ekki inn á staðinn og þurftu að láta útisvæðið sér nægja. mbl.is/Jón Helgi

Íslendingar fylgdust margir hverjir grannt með úrslitaleik Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fór á Wembley í Lundúnum. Ítalir lögðu Englendinga 3-2 í vítaspyrnukeppni. 

Sig­ur­inn er sá fyrsti hjá Ítal­íu á EM frá ár­inu 1968. Eng­lend­ing­ar þurfa hins­ veg­ar að bíða leng­ur eft­ir sín­um öðrum sigri á stór­móti. Englendingar höfðu ekki svo mikið sem komist í úrslitaleik á stórmóti í 55 ár og mega því eflaust vel við una. 

Barir og krár í miðborginni voru þéttsetin meðan á leik stóð. Sumir staðir urðu yfirfullir og þurftu margir að láta sér nægja að fylgjast með leiknum á útisvæðum staða.

mbl.is/Jón Helgi
mbl.is/Jón Helgi
mbl.is/Jón Helgi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert