Tvisvar keyrt á sömu bifreið

Tvisvar var ekið á sömu bifreið í Hafnafirði í dag.
Tvisvar var ekið á sömu bifreið í Hafnafirði í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um umferðaróhapp til lögreglu um klukkan hálfþrjú í Hafnarfirði í dag að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Þar segir að tjónvaldur hafi stungið af frá vettvangi en skömmu símar hafi annarri bifreið verið ekið á bílinn sem varð fyrir tjóninu.

Þá segir í dagbókinni að skútu hafi hvolft í Hafnarfjarðarhöfn laust fyrir hádegi. Skútan hafi þó verið komin í land þegar lögreglu bar að og engin slys orðið á fólki.

Nokkrar tilkynningar voru um þjófnað, eignaspjöll og innbrot frá klukkan fimm í morgun til fimm síðdegis hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert