Andlát: Magnús Norðdahl flugstjóri

Magnús flaug listflug til ársins 2020 þegar hann var orðinn …
Magnús flaug listflug til ársins 2020 þegar hann var orðinn 92 ára gamall. Ljósmynd/ Pétur P. Johnson

Magnús Norðdahl, flugstjóri og fimmfaldur Íslandsmeistari í listflugi lést á heimili sínu þann 8. september, 94 ára að aldri. Hann fæddist 20. febrúar 1928. Foreldrar Magnúsar voru Guðmundur Norðdahl trésmiður og Guðrún Pálsdóttir húsmóðir.

Hann fór í sitt fyrsta flug árið 1944 á svifflugu með útsýni yfir Esjuna og tók sína fyrstu flugtíma á Stearman og blindflugsáritun frá breska flughernum á Reykjavíkurflugvelli. Árið 1946 fór hann í flugnám til Englands, með togara, og útskrifaðist þaðan sumarið 1947.

Hóf hann störf hjá Loftleiðum til reynslu sumarið 1947, en fékk síðan fastráðningu 1. júní 1948 og starfaði hjá Loftleiðum í yfir 39 ár, eða til febrúar 1991.

Magnús starfaði einnig í skamman tíma fyrir BOAC (British Overseas Airways Corporation), sem var hluti af British Airways í miðausturlöndum, þegar flugrekstur á Íslandi gekk ekki sem skyldi.

Frumkvöðull í listflugi

Óhætt er að segja að hann hafi verið frumkvöðull í listflugi á Íslandi og var hann öðrum flugmönnum hvatning til að stunda listflug og alltaf tilbúinn að miðla af reynslu sinni og kunnáttu sem hann bjó yfir í miklu mæli.

Magnús keppti í listflugi og varð Íslandsmeistari fimm sinnum, fyrst árið 1996 og síðast árið 2001.

Sýndi hann oft listflug á flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli og síðast árið 2017 þegar hann var 89 ára gamall.

Magnús flaug listflug til ársins 2020 þegar hann var orðinn 92 ára gamall. Flugið var hans eina áhugamál því í flugvél var hann frjáls eins og fuglinn eins og var svo oft haft eftir honum.

Eiginkona Magnúar var María Sigurðardóttir Norðdahl heildsali en hún lést árið 2017. Börn Magnúsar eru Sigurður, Guðrún, Guðmundur, Magnús Steinarr og Jóna María, og eru barnabörn 10, og barnabarnabörnin 8.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert