Nauðlentu í Keflavík vegna barnshafandi konu

Vél American Airlines þurfti að nauðlenda í Keflavík í dag.
Vél American Airlines þurfti að nauðlenda í Keflavík í dag. AFP

Vél American Airlines á leið frá Heathrow á Bretlandi til Chicago í Bandaríkjunum þurfti að nauðlenda í Keflavík í dag vegna þess að fæðing hófst hjá barnshafandi konu um borð.

Sjúkrabíll frá Keflavík mætti konunni í Leifsstöð þar sem ástand hennar var metið og hún flutt á viðeigandi stofnun. Konan var gengin stutt á leið, en líðan hennar var stöðug þegar hún var flutt á sjúkrahús. 

Vélin stoppaði í um tvær klukkustundir í Keflavík og hélt af stað til Chicago rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis.

Einn farþega úr fluginu greindi frá þessari óvæntu millilendingu á Twitter í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka