„Svart svínarí olíufélaganna“

Bensínlíterinn kostar um 333 krónur.
Bensínlíterinn kostar um 333 krónur. AFP

„Lítri af bensíni er nú 50 krónum dýrari en í byrjun ársins, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé í þessari viku á svipuðu róli og þá. Heimsmarkaðsverðið er uppreiknað með gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal,“ segir í tilkynningu frá Félagi bifreiðaeigenda í tilefi svarts föstudags. 

Þar segir að í janúar hafi fullt útsöluverð hjá N1 verið um 280 krónur en nú er það 333 krónur.

Hækka verð þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði

„Íslensku olíufélögin hækkuðu reglulega útsöluverð á bensíni og dísilolíu þegar heimsmarkaðsverð hækkaði eftir innrás Rússa í Úkraínu. Í sumar fór heimsmarkaðsverð hratt lækkandi, en lítraverð hér á landi fylgdi rólega eftir og hefur nánast staðið í stað frá því í byrjun september. Síðan í sumar hefur lítraverð á bensíni hjá Q8 í Danmörku aftur á móti lækkað um 60 krónur, úr 330 krónum í 270 og þannig fylgt lækkun heimsmarkaðsverðs í einu og öllu. Skattar á bensín í Danmörku eru heldur hærri í krónum á lítra en hér á landi,“ segir í tilkynningunni. 

Í henni segir einnig að ljóst sé að verðlagning olíufélaganna sé okur og að þegjandi samráð ríki um háa álagninu. 

„Heimsmarkaðsverði er fylgt hratt upp en löturhægt niður. Að teknu tilliti til gengis dollara, þá er heimsmarkaðsverð á hvern bensínlítra svipað síðustu daga og það var i janúar og febrúar, eða um 95 krónur. Þá gat N1 selt bensínlítrann á 280 krónur, en heimtar nú 333 krónur.“

Þá kemur fram að verð umfram hækkanir á heimsmarkaðsverði nái einnig til afsláttastöðvanna. 

„Miðað við álagningu olíufélaganna í janúar síðastliðnum ætti lítraverðið á afsláttarstöðvunum að vera í kringum 260 krónur. En þar kostar bensínlítrinn 306 krónur. Meira að segja Costco hefur stokkið á vagninn og hækkað álagningu. Bensínverð þar er aðeins 2,5% lægra en hjá keppinautum. Ef Costco héldi sig við álagningarstefnu fyrirtækisins í öðrum löndum gæti bensínið kostað tugum króna minna hjá Costco Urriðaholti en hinum félögunum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert