Minnst 50 metrar skulu vera milli bíla

Mikil umferð var um Hvalfjarðargöngin þessa sömu helgi í fyrra.
Mikil umferð var um Hvalfjarðargöngin þessa sömu helgi í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Nú stendur yfir mikil ferðahelgi enda veðrir gott víða um land. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að búast megi við talsverðri umferð á hringveginum alla helgina, ekki síst í Hvalfjarðargöngunum. 

Vegfarendur sem eiga leið um göngin eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát þegar ekið er um göngin í mikilli umferð.

Fram kemur að mikil umferð hafi verið um Hvalfjarðargöngin þessa sömu helgi í fyrra. Þá hafi orðið mörg óhöpp í göngunum og fjöldi ökutækja orðið fyrir tjóni. 

Umferðaróhöpp í göngunum geta ollið miklum umferðartöfum enda nauðsynlegt að loka göngunum þegar óhöpp verða, til þess að tryggja öryggi á meðan leyst er úr aðstæðum. 

Vegfarendur eru hvattir til þess að passa sérstaklega upp á bilið, raunar í öllum jarðgöngum, en skilti við Hvalfjarðargöngin segir til um að minnst 50 metrar skuli vera milli allra bíla. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert