Matvara ódýrari hér en í Evrópu

Finnur Oddsson forstjóri Haga segir í ítarlegu samtali við ViðskiptaMoggann …
Finnur Oddsson forstjóri Haga segir í ítarlegu samtali við ViðskiptaMoggann í dag að færa megi rök fyrir því að ódýrara sé að kaupa í matinn á Íslandi en annars staðar í Evrópu. mbl.is/Eyþór

Finnur Oddsson forstjóri Haga segir í ítarlegu samtali við ViðskiptaMoggann í dag að færa megi rök fyrir því að ódýrara sé að kaupa í matinn á Íslandi en annars staðar í Evrópu.

Spurður af hverju matvara sé dýr á Íslandi spyr Finnur á móti hvort hún sé raunverulega dýr.

„Það er reyndar skiljanlegt að við fáum þessa tilfinningu þegar við förum með okkar íslenska kaupmátt og verslum erlendis, einkum í suðurhluta Evrópu. En samanburðurinn er aðeins villandi, því réttara væri að skoða verðlag í hverju landi í samhengi við heildarútgjöld heimila, ráðstöfunartekjur eða rekstrarkostnað á viðkomandi stað.

Þannig mælt, þá telur matarkarfa heimila á Íslandi um 13% útgjalda, sem er lægra hlutfall af útgjöldum en meðaltal um 30 Evrópulanda, allt frá Noregi til Portúgals, sem er tæplega 16% (m.v. árið 2021). Á síðustu tíu árum hefur þetta hlutfall lækkað á Íslandi en hækkað í nágrannalöndunum. Það má því færa rök fyrir því að það sé í einhverjum skilningi ódýrara fyrir heimafólk að kaupa í matinn hérlendis en á velflestum stöðum í Evrópu, a.m.k. hlutfallslega miðað við útgjöld eða laun,“ segir Finnur.

Í samtalinu ræðir hann einnig verðbólgu. Hann segir matvöru hafa orðið dýrari vegna þess að það varð dýrara að framleiða hana. „Það vandamál mun ekki hverfa með neinum töfrabrögðum.“

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í ViðskiptaMogg­an­um í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert