Skýr viðurkenning á bótum til ekkju

Landspítali háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Landspítali háskólasjúkrahús í Fossvogi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður eftirlifandi eiginkonu fyrsta plastbarkaþegans í heiminum, segir ákvörðun Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítala um að fela ríkislögmanni um að beina kröfu um bætur til ríkislögmanns fela í sér skýra viðurkenningu á bótum vegna málsins. 

Hann segir að sökum þess að Landspítalinn hafi forgöngu í málinu með því að færa það í þennan farveg megi ætla að hlutverk ríkislögmanns sé að finna útfærslu á bótum sem íslenska ríkið komi til með að greiða. 

Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson mbl.is/Árni Sæberg

Eins konar tilmæli 

Sigurður og Gestur Gunnarsson, sendu erindi á Landspítala fyrir skemmstu þar sem gerð var bótakrafa á spítalans vegna málsins. 

Málið varðar bæt­ur til Mehawit Baray­mika­el Tes­faslae eft­ir­lif­andi eig­in­konu fyrsta plast­barkaþeg­ans Anem­ariam Beyene. Land­spít­al­inn fékk til dags­ins í dag að svara kröfu­bréfi sem Sig­urður G. Guðjóns­son og Gest­ur Páls­son, lög­menn sendu fyr­ir hönd henn­ar.

Brást skrifstofa forstjórans með bréfi á vefsíðu LSH í kvöld þar sem tilkynnt var um að ríkislögmaður myndi fara með málið. „Alla jafna er um að ræða eins konar tilmæli frá stofnuninni um að greiða bætur því hún hefur sjálf ekki formlegt vald til þess,“ segir Sigurður.  

Þung­ur dómur í Svíþjóð

Tóm­as Guðbjarts­son læknir hafði aðkomu að aðgerðinni. Hana fram­kvæmdi Paolo Macchi­ar­ini sem fékk ný­lega þung­an dóm í Svíþjóð fyr­ir grófa lík­ams­árás gegn þrem­ur plast­barkaþegum. 

Í til­kynn­ingu frá Land­spít­al­an­um seg­ir að niðurstaða dóms­ins sé for­senda bóta­greiðslna til ekkj­unn­ar. 

Tilkynning barst frá skrifstofu forstjóra Landspítalans, Runólfs Pálssonar, í kvöld.
Tilkynning barst frá skrifstofu forstjóra Landspítalans, Runólfs Pálssonar, í kvöld.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert