Brennuvargsins enn leitað

Slökkviliðið var kallað út í gær vegna íkveikjunnar.
Slökkviliðið var kallað út í gær vegna íkveikjunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögregla leitar enn að manni sem kveikti í bílum á bílastæði við Smiðjuveg í Kópavogi í gær. 

Þetta staðfestir Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Í gær var greint frá því að slökkvilið hefði verið kallað út rétt fyrir kl. 21 eftir að hinn seki kveikti í þremur bílum. Þóra segir nú að kveikt hafi verið í fjórum ökutækjum.

Aftur á móti birti maður að nafni Dovydas Riškus myndefni úr öryggismyndavél á Facebook-hópnum Brask og Brall þar sem sjá má mann reyna að kveikja í hátt í sex bifreiðum fyrir utan hús við Smiðjuveg.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert