Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn

Starfshópur leggur til að auglýsingasala RÚV verði stafræn.
Starfshópur leggur til að auglýsingasala RÚV verði stafræn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í skýrslu starfshóps um málefni Ríkisútvarpsins er lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn.

Í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu segir að markmiðið með skipan hópsins sé meðal annars sú að skoða mögulegar leiðir og tillögur til að að breyta eðli og umfangi auglýsingadeildar RÚV til að minnka umsvif ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði.

Hefðbundin sala og markaðssetning óheimil

Í skýrslunni eru útlistaðar þrjár leiðir en sú þriðja er talin ákjósanlegust og hefur hún verið kynnt ríkisstjórninni. Í henni er svokölluð stafræn leið sem gerir ráð fyrir að hefðbundin sala og markaðssetning á auglýsingum hjá RÚV verði óheimil en auglýsingahólf séu þess í stað seld á vefnum.

„Meðal viðbótarákvæða er að vefpantanir séu án aðkomu sölufólks og öll þjónustulaun verði afnumin. Aðrar tillögur í leið þrjú snúa að fastri verðskrá og afnám afslátta, fríbirtinga, blokkasölu, skjáauglýsinga og kostanna. 

Aðgerðin í samræmi við þjónustusamning

Skipaður verður vinnuhópur um útfærslu stafrænnar leiðar sem skila skal tillögum, ásamt verk- og tímaáætlun, eigi síðar en 31. maí 2024. 

„Aðgerð þessi er í samræmi við þjónustusamning sem ráðherra og útvarpsstjóri undirrituðu í janúar og kalla eftir að umsvif RÚV á auglýsingamarkaði verði minnkuð,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert