Fer til Sádi-Arabíu

Björn Zoëga, fráfarandi forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, mun taka við stærsta sjúkrahúsi Sádi-Arabíu í næsta mánuði. Þetta upplýsir hann í viðtali í Morgunblaðinu í dag.

Þar segir hann frá því að síðastliðin tvö ár hafi honum borist fjöldi starfstilboða en að verkefnið sem nú bíði hans hafi komið á borð hans í kjölfar þess að upplýst var að hann hygðist láta af starfi sínu í Svíþjóð.

Áður en að því kom höfðu forsvarsmenn sjúkrahússins í Sádi-Arabíu óskað eftir því að hann tæki sæti í stjórn stofnunarinnar.

Spítalinn sem um ræðir nefnist King Faisal Specialist Hospital and Research Centre.

Þar starfa um 15 þúsund manns og legurými eru 2.400 talsins. Til samanburðar eru þau innan við 700 á Landspítalanum.

Þörf á skipulagsbreytingum

Björn segir verkefnið fram undan spennandi en krefjandi, ekki síst þar sem um annan menningarheim sé að ræða.

Fjármögnun spítalans sé ekki vandamál en ráðast þurfi í skipulagsbreytingar til þess að bæta þjónustu og fara betur með það fjármagn sem veitt er inn í stofnunina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert