Fékk 8,7 milljónir í aðalvinning

Einn var með allar tölur réttar og fær 8,7 milljónir.
Einn var með allar tölur réttar og fær 8,7 milljónir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í údrætti kvöldsins í Lottó og fær hann rúmar 8,7 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn  var keyptur í Lottó appinu.

Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 400 þúsund krónur.

Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna en sá var með miðann sinn í áskrift.

Fjórir miðahafar voru með annan vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur á lotto.is, einn á N1 Fossvogi og tveir miðanna eru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert