Íslendingur tók þriðja vinninginn

Heppnin var sannarlega með norskum huldumanni í útdrætti Víkingalottós í …
Heppnin var sannarlega með norskum huldumanni í útdrætti Víkingalottós í kvöld.

Norðmaður var með fyrsta vinning í Víkingalottó kvöldsins. Fyrir vikið fær hann 1.890.512.210 krónur í sinn hlut eða tæpa 2 milljarða. 

Íslendingur hlaut 3. vinning og fær rúmar 1,8 milljónir króna. Miðinn var keyptur á vefsíðu Íslenskrar getspár. 

Jókerinn gekk ekki út að sinni en fjórir miðahafar voru með annan vinning jókersins og fá þeir hver um sig 100.000 krónur. Þrír miðanna voru keyptir á vefsíðu getspár og einn í smáforriti getspár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert