Vann níu milljónir en svarar ekki í símann

Lottó.
Lottó.

Vinningshafinn sem var með allar tölur réttar í Lottóinu síðastliðinn laugardag hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Vinningsmiðinn var einnig keyptur í appinu.

„En þar eru einungis skráðar upplýsingar um heimasíma, sem aldrei er svarað í, og netfang sem er greinilega ranglega skráð eða orðið óvirkt. Spilarar sem nota appið eru því hvattir til að kíkja í símann og gá hvort þar leynist nokkuð fyrsti vinningur, upp á tæpar 9 milljónir króna frá síðasta laugardegi,“ segir í tilkynningu.

Afmælisdagur frænkunnar skipti sköpum

Íslensk kona sem er búsett á Norðurlöndunum var ein með allar tölur réttar í Lottóinu laugardaginn 16. mars og fékk fyrsta vinning því alveg óskiptan, rétt tæpar níu skattfrjálsar milljónir.

„Konan sem vinnur í heilbrigðisgeiranum, kom til landsins á dögunum til að taka á móti stóra vinningnum. Hún kaupir reglulega miða með Lottó-appinu og segir það ákveðna leið til að halda tengslum við landið sitt og alveg sérstaklega gaman að gera sér ferð hingað núna af þessu tilefni í kringum páskana,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að hún hafi boðið ungri frænku sinni með til að vitja vinningsins hjá Íslenskri getspá enda hafði sú heppna hingað til mest spilað með sömu tölurnar, en í þetta skipti bætti hún afmælisdegi frænkunnar inn í happatölurnar og gerði það útslagið.

„Það var svo skemmtileg auka-tilviljun að sú sem fékk fyrsta vinning á sama afmælisdag, og sá sem fékk bónusvinninginn þennan saman laugardag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert