Vinningshafinn fundinn

Konan var með úrelt netfang og einungis heimasíma skráðan hjá …
Konan var með úrelt netfang og einungis heimasíma skráðan hjá Íslenskri getspá.

Vinningshafinn sem var með allar tölur réttar í Lottóinu síðastliðinn laugardag er kominn í leitirnar.

Sú heppna sá fréttir dagsins í dag þar sem hennar var leitað og hafði samband við Íslenska getspá. 

Keypti konan miðann í smáforriti getspár en var aðeins með heimasíma skráðan og úrelt netfang. 

Þegar hún tók eftir fréttum dagsins í dag skoðaði hún forritið og komst að því að hún væri níu milljón krónum ríkari. Í kjölfarið hafði hún samband við skrifstofu Íslenskrar getspár.

„Vinningshafinn er að vonum lukkuleg með allar milljónirnar og hefur þegar uppfært allar sínar upplýsingar í Lottóappinu og hvetur aðra spilara til að gera slíkt hið sama,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert