Fá loks hlaupabretti og jógasal

Ný viðbygging við íþróttamiðstöðina verður um 700 fermetrar.
Ný viðbygging við íþróttamiðstöðina verður um 700 fermetrar. mbl.is

„Við bindum vonir við að þetta verði lyftistöng fyrir svæðið,“ segir Iða Marsibil Jónsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps.

Sveitarfélagið hefur óskað eftir tilboðum í byggingu 700 fermetra viðbyggingar við íþróttamiðstöðina á Borg í Grímsnesi.

Viðbyggingin verður á tveimur hæðum og er langþráð viðbót við íþróttahúsið, að sögn sveitarstjórans.

Á neðri hæðinni á að vera fullkomin líkamsræktaraðstaða; tækjasalur, hlaupabretti og jógasalur svo eitthvað sé nefnt.

Jafnframt verður hægt að opna út og færa æfingarnar þangað þegar vel viðrar.

Aðstaðan lítil í dag

„Líkamsræktaraðstaðan í dag er mjög lítil. Það geta eiginlega bara tveir verið að æfa í einu með góðu móti.

Sundlaugin okkar er gríðarlega vinsæl og þessi viðbót verður eflaust kærkomin fyrir íbúa og sumarhúsaeigendur.

Við erum með 3.300 sumarhús í nágrenninu og í þeim dvelur fólk sem vill gjarnan teygja úr sér,“ segir Iða Marsibil.

Skrifstofuhúsnæði á efri hæð

Á efri hæð viðbyggingarinnar er gert ráð fyrir skrifstofuhúsnæði. Jarðvegsvinna fer af stað á næstu vikum, að sögn sveitarstjórans, og byggingin gæti verið fullbúin á næstu 2-3 árum.

Þá eru uppi hugmyndir um að bæta enn frekar hina vinsælu sundlaug. Segir Iða Marsibil að peningar hafi verið eyrnamerktir í hönnun á útisvæði laugarinnar og vinna við þær hugmyndir fari bráðlega í gang.

Meira í fimmtudagsblaði Morgunblaðisins.

Iða Marsibil Jónsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps.
Iða Marsibil Jónsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. Ljósmynd/Aðsend
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert