„Þetta ofbeldi verður að stöðva“

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur …
Hagsmunasamtök heimilanna lýsa fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á því vaxtaofbeldi sem heimili landsins hafa verið beitt á undanförnum tveimur árum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á því vaxtaofbeldi sem heimili landsins hafa verið beitt á undanförnum tveimur árum og ekki sér enn fyrir endann á.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna en þar segir að ekki sé hægt að bæta böl með því að búa til annað verra.

„Það er samt nákvæmlega það sem ríkisstjórnin hefur látið líðast að Seðlabankinn geri, án þess að grípa til nokkurra varna fyrir heimilin með neinum hætti. Heimilin eru jafn varnarlaus gagnvart þessu og fórnarlamb vopnaðs ráns í húsasundi,“ segir í tilkynningunni.

Rán og eignaupptaka á fjármunum heimilanna

Hagsmunasamtökin segja að þetta sé rán og eignaupptaka á fjármunum heimilanna, sem engin hækkun á fasteignamagi geti bætt upp, enda eykur hún ekki ráðstöfunarfé heimilanna á nokkurn átt heldur aðeins kostnað þeirra.

„Þetta ofbeldi verður að stöðva og það ber ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að gera án tafar áður en skaðinn verður meiri en þegar er orðið. Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að vextir verði lækkaðir nú þegar, að minnsta kosti jafn mikið og verðbólga hefur lækkað frá því að hún náði hápunkti fyrir rúmu ári síðan,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Samtaka leigjenda.

„Ástandið á leigumarkaðnum er vægast sagt hræðilegt. Það er ekki of djúpt í árina tekið að segja að hann einkennist af stjórnleysi, kerfisbundinni fjárkúgun og misbeitingu á varnarlausum leigjendum, sem einhversstaðar þurfa höfði sínu að halla.

Þessu ástandi hefur verið mætt af ámælisverðu skeytingarleysi af hendi stjórnvalda og ekki nóg með það, heldur er það við þennan ógnarmarkað sem hlítir engri stjórn sem Hagstofan vill miða húsnæðislið vísitölunnar, sem nær augljóslega ekki nokkurri átt.“

Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að vextir verði lækkaðir nú þegar, að minnsta kosti jafn mikið og verðbólga hefur lækkað frá því að hún náði hápunkti fyrir rúmu ári síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka