Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina og vilja rjúfa þing

Jafnframt er farið fram á að þing verði rofið fyrir …
Jafnframt er farið fram á að þing verði rofið fyrir 26. júlí og efnt til almennra kosninga þann 7. september. mbl.is/Hari

Flokkur fólksins og Píratar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar, þar sem vantrausti er lýst á ríkisstjórnina.

Jafnframt er farið fram á að þing verði rofið fyrir 26. júlí og efnt til almennra kosninga þann 7. september.

Flutningsmenn tillögunnar eru: Inga Sæland, Björn Leví Gunnarsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Eyjólfur Ármannsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Gísli Rafn Ólafsson, Katrín Sif Árnadóttir, Halldóra Mogensen, Tómas A. Tómasson og Indriði Ingi Stefánsson.

Er tillagan svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið fyrir 26. júlí og efnt til almennra þingkosninga 7. september.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert