Skólabrú í Vogabyggð

Í vinningstillögunni er skólinn byggður sem brú, alveg upp að …
Í vinningstillögunni er skólinn byggður sem brú, alveg upp að Vörputorgi og er garður á þaki hans útivistarsvæði hverfisins, í framhaldi af torginu. Drónamynd og tölvugrafík/ONNO ehf.

Úti og inni arkitektar í samstarfi við Landform landslagsarkitekta og ONNO þrívíddarvinnslu fengu fyrstu verðlaun í samkeppni um nýjan samþættan leik- og grunnskóla, frístundaheimili og félagsmiðstöð auk nýrrar göngu- og hjólabrúar í Fleyvangi.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að í umsögn dómnefndar um vinningstillöguna Skólabrú segir að þar sé „djörf og fersk tillaga sem byggir á sterkri skipulagslegri sýn“. Mannvirkjunum er ætlað að þjóna nýrri Vogabyggð en gert er ráð fyrir allt að 1.500 íbúðum á svæðinu. 

Einar Þorsteinsson borgarstjóri með verðlaunahöfum.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri með verðlaunahöfum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Miðja í Vogabyggð sem glæðir hverfið lífi 

„Með þessu verður til miðja í Vogabyggð sem glæðir hverfið lífi enda eru skólarnir hjörtun í hverfum borgarinnar. Tillagan er afar spennandi og býr til heildstæða umgjörð fyrir skóla- og frístundastarf í mikilli nálægð við einstaka náttúru á svæðinu,“ segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri sem tilkynnti úrslitin í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni síðdegis í dag.

Tölvugrafík/ONNO ehf.

 

Sýning á verðlaunatillögunum stendur yfir í þjónustuverinu til 3. maí en á Fleyvangi verður einnig nýtt útivistarsvæði og almenningsrými borgarbúa og var útfærsla svæðisins hluti samkeppninnar. Brúin sem tengja á skólabygginguna við Vogabyggð verður aðal samgönguæð til og frá skóla og mikilvægt kennileiti í borgarlandinu.

Tölvugrafík/ONNO ehf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert