Myndagallerí
Þinglok
Birtingardagur:
Föstudaginn, 3. júlí 2015
Alþingi komst í sumarleyfi rúmum mánuði á eftir áætlun en síðustu verk þingmanna var að leggja blessun sína yfir haftafrumvörpin svokölluðu. Að því loknu héldu þingmenn út í sumarið með knúsum og kossum.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, faðmar hér Valgerði Gunnarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, eftir að þingfundi var loks slitið.
Mynd 1 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Þingkonur Framsóknarflokksins, þær Sigrún Magnúsdóttir, Vigdís Hauksdóttir og Jóhanna María Sigmundsdóttir héldur kátar út í sumarið. Dressman yrði stoltur.
Mynd 2 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Haraldur Benediktsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir gáfu þingmönnum framsóknar ekkert eftir.
Mynd 3 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var eflaust reiðubúin að komast í sumarfrí eins og flestir kollegar hennar.
Mynd 4 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Ólöf Nordal innanríkisráðherra var létt í lund ásamt starfsmanni þingsins.
Mynd 5 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra voru einbeittir á svip í þingsal.
Mynd 6 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra spekingslegur á svip.
Mynd 7 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, var létt í lund.
Mynd 8 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, setti upp sparibrosið í tilefni dagsins.
Mynd 9 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ásamt Kristjáni Möller, þingmanni Samfylkingarinnar.
Mynd 10 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hlustaði á ræðu forseta Alþingis.
Mynd 11 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði við hlustir.
Mynd 12 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar Framtíðar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru mögulega farin að sjá sumarleyfið í hillingu.
Mynd 13 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Það lá vel á Eldari Ástþórssyni, varaþingmanni Bjartrar Framtíðar, sem lítur sumarið vonandi björtum augum.
Mynd 14 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Flokksbræðurnir Össur Skarphéðinsson og Helgi Hjörvar skeggræddu í þingsal.
Mynd 15 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fylgdist grannt með.
Mynd 16 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, og Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar mættust á miðri leið.
Mynd 17 af 17 – Ljósm.: mbl.is/Eggert